Lýsing
Beard Monkey Multon ilmvatn – hentar öllum kynjum
Nýju herra ilmvötnin frá Beard Monkey – Multon og Sublevo – eru innblásin af manni að nafni Guy Long Floyd sem skrifaði um leiðangra sína í Amazon frumskóginn.
Multon ilmurinn er innblásinn af lyktinni sem apar gefa frá sér til að laða að hugsanlega bólfélaga. Frumbyggjar hafa lengi blandað jurtum af ýmsu tagi til að líkja eftir ilminum og kalla þeir hann „vibrações incríveis“ sem þýða má sem „frábærir straumar“. Þetta er ilmur í þyngri kantinum með krydd-ívafi sem er hægt að nota hvort sem er á daginn eða kvöldin.
Toppnótur: kardimommur, bergamía
Hjartnótur: viður, reykelsi, leður, blágresi
Grunntónn: oud, amber patchouli
50ml