Moroccanoil Color Depositing Mask Platinum 200ml
5.490 kr.
Aðeins fyrir ljóst til platínu ljóst hár
Tvíþættur maski sem bætir tímabundnum köldum, platínu tónum við ljós til meðalljóst hár á sama tíma og eykur mýkt og glans.
Upplifðu tímabundinn lit með djúpnæringalitamaska.
Auðveldur í notkun og er fáanlegur í nokkrum litum, gerir þér kleift að prófa þig áfram með tískuliti, auka dýpt þeirra eða lengja líftíma litarins á milli heimsókna á stofuna.
Útkoman er einstaklingsbundin og fer eftir ástandi hársins og lit þess.
Nærandi innihaldsefni þar á meðal amínósýrublöndu, apríkósukjarnaolíu og endurbyggjandi ArganID™ tækni sem fara blíðum höndum um hár þitt. Umbúðirnar eru unnar að hálfu leyti úr endurunnu efni og því er þetta kjörin leið til að minnka kolefnissporið með því að nota minni orku.
Platinum er kaldur ljós litur til notkunar í ljósu og miðlungsljósu hári.
Útkoman er einstaklingsbundin og fer eftir ástandi hársins og lit þess.
Athugaðu að þessi vara er ekki ætluð fyrir gráa litatóna.
Kostir litarins:
•Gefur hárinu aukinn litatón
•Endurlífgar lit hársins.
•Sérsniðinn hárlitur
•Tímabundin virkni
Kostir umhirðunnar:
•Djúpnærir
•Eykur mýkt hársins samstundis.
•Eykur heilbrigði hársins.
•Veitir hárinu eftirtektarverðan gljáa.
*Varan er eingöngu fáanleg í netverslun
Lýsing
Notkun
1.Þvoið hárið og þerrið.
2.Skiptið hárinu upp og berið vel af maskanum í hárið.
3.Dreifið vel, gott að nota grófa greiðu.
4.Biðtími er 5-7 mínútur en það fer allt eftir hversu djúpur liturinn á að vera.
5.Skolið og mótið hárið svo eins og venjulega.
TIPS:
Áður en allt hárið er litað mælum við með því að einn lokkur sé litaður til að ná fram réttum litatóni. Byrjaðu á að velja lítinn lokk til að prófa, helst einhvern sem er vel falinn þegar hárið þitt er náttúrulega greitt.
Einangraðu lokkinn og taktu allt annað hár vel frá.
Berðu Color Depositing Mask í lokkinn og leyfðu maskanum að liggja í 2-3 mínútur.
Skolið.
Ef liturinn er of daufur, prófaðu þá annan lokk og láttu maskann liggja lengur í.
Ráð:
Ef þú vilt ná fram pastel áferð, blandaðu þá ¼ hlut af Color Depositing Mask og ¾ hlutum af Moroccanoil® Weightless Hydrating Mask eða Clear Depositing Mask til að mýkja útkomuna.
Athugið:
Color Depositing Maskarnir veita hárinu tímabundinn lit sem er hannaður til að renna smám saman úr.
Þeim mun ljósara sem hárið er, þeim mun lengur mun liturinn duga.
Litaútkoman og líf litarins er líka háð því hversu gljúpt hárið er.
Leitaðu ráða hjá fagmanni á Moroccanoil hársnyrtistofu ef þú vilt flýta fyrir því að liturinn dofni.
Þessi litanæring hentar ekki i grátt hár.