Moroccanoil Color Depositing Mask Lilac 200ml

5.490 kr.

Aðeins fyrir ljóst til meðal ljóst hár.

Tvíþættur maski sem bætir tímabundnum pastel fjólubláum lit í ljóst hár um leið að gefa mýkt og glans.

Upplifðu tímabundinn lit með djúpnæringalitamaska.

Auðveldur í notkun og er fáanlegur í nokkrum litum, gerir þér kleift að prófa þig áfram með tískuliti, auka dýpt þeirra eða lengja líftíma litarins á milli heimsókna á stofuna.

Útkoman er einstaklingsbundin og fer eftir ástandi hársins og lit þess.

Nærandi innihaldsefni þar á meðal amínósýrublanda, apríkósukjarnaolía og endurbyggjandi ArganID™ tækni sem fer blíðum höndum um hár þitt. Umbúðirnar eru unnar að hálfu leyti úr endurunnu efni og því er þetta kjörin leið til að minnka kolefnissporið með því að nota minni orku.

Lilac er pastel fjólublár litur og getur tekið lengri tíma að renna úr hárinu.

Hentar ekki gráu hári.

Kostir litarins:
Bætir litatón.
Frískar uppá núverndi hárlit
Sérsniðinn hárlitur.
Tímabundin virkni.

Kostir umhirðunnar:
Djúpnærir.
Hjálpar til við að endurheimta heilsu hársins.
Gefur glans.

*Varan er eingöngu fáanleg í netverslun 

Lýsing

Notkun

TIPS:
Áður en allt hárið er litað mælum við með því að einn lokkur sé litaður til að ná fram réttum litatóni. Byrjaðu á að velja lítinn lokk til að prófa, helst einhvern sem er vel falinn þegar hárið þitt er náttúrulega greitt.

Einangraðu lokkinn og taktu allt annað hár vel frá.

Berðu Color Depositing Mask í lokkinn og leyfðu maskanum að liggja í 2-3 mínútur.

Skolið.

Ef liturinn er of daufur, prófaðu þá annan lokk og láttu maskann liggja lengur í.