Moroccanoil Color Depositing Mask Copper 30ml

1.590 kr.

Aðeins fyrir meðalljóst til ljósbrúnt hár

Tvíþættur maski sem bætir tímabundnum koparskugga við meðalljóst til ljósbrúnt hár á sama tíma og hann eykur mýkt og glans.

Upplifðu tímabundinn hárlit með þeim kostum sem djúpnæringarmeðferð gefur.

Þessi maski, sem er auðveldur í notkun og er fáanlegur í nokkrum litum, gerir þér kleift að prófa þig áfram með tískuliti, auka dýpt þeirra eða lengja líftíma litarins á milli heimsókna á stofuna.
Hann inniheldur einnig nærandi efni, svo sem amínósýru, apríkósukjarnaolíu og hina endurbyggjandi ArganID tækni sem veitir hárinu heilbrigðari tilfinningu og útlit.

Color Depositing Mask umbúðirnar eru unnar að hálfu leyti úr endurunnu efni og því er þetta kjörin leið til að minnka kolefnissporið með því að nota minni orku.

Copper er ákafur kopartónn til notkunar í mesium ljósu og ljósbrúnu hári.
Útkoman er einstaklingsbundin og fer eftir ástandi hársins og lit þess.

Athugaðu að þessi vara er ekki ætluð fyrir gráa litatóna né ljóst hár.

*Varan er eingöngu fáanleg í netverslun 

Lýsing

Notkun

TIPS:
Áður en allt hárið er litað mælum við með því að einn lokkur sé litaður til að ná fram réttum litatóni. Byrjaðu á að velja lítinn lokk til að prófa, helst einhvern sem er vel falinn þegar hárið þitt er náttúrulega greitt.
Einangraðu lokkinn og taktu allt annað hár vel frá.
Berðu Color Depositing Mask í lokkinn og leyfðu maskanum að liggja í 2-3 mínútur.
Skolið.
Ef liturinn er of daufur, prófaðu þá annan lokk og láttu maskann liggja lengur í.

Nánar
Color Depositing Maskarnir veita hárinu tímabundinn lit sem er hannaður til að renna smám saman úr.
Þeim mun ljósara sem hárið er, þeim mun lengur mun liturinn duga.
Litaútkoman og líf litarins er líka háð því hversu gljúpt hárið er.
Leitaðu ráða hjá fagmanni á Moroccanoil hársnyrtistofu ef þú vilt flýta fyrir því að liturinn dofni.

Athugið að þessi kopartónn er mjög ákafur og ef þú vilt milda tóninn í meðal ljósu hári þá máttu blanda koparmaskann saman í skál með Clear maskanum eða hvítri hárnæringu til að tóna hann niður. Gott ráð áður en lituinn er borinn í hárið er að setja prufu á hvítan pappír til að finna áætlaðan tón.

Þessi litanæring hentar ekki i grátt hár.