Ekki til á lager
Moroccanoil Color Depositing Mask Cocoa 200ml
5.490 kr.
Aðeins fyrir ljósbrúnt til dökkbrúnt hár
Tvíþættur maski sem hjálpar til við að endurheimta ríkan, súkkulaðilit í ljósbrúnt og dökkbrúnt hár um leið og maskinn eykur mýkt og glans.
Upplifðu tímabundinn lit með djúpnæringalitamaska.
Auðveldur í notkun og er fáanlegur í nokkrum litum, gerir þér kleift að prófa þig áfram með tískuliti, auka dýpt þeirra eða lengja líftíma litarins á milli heimsókna á stofuna.
Útkoman er einstaklingsbundin og fer eftir ástandi hársins og lit þess.
Nærandi innihaldsefni þar á meðal amínósýrublanda, apríkósukjarnaolía og endurbyggjandi ArganID™ tækni sem fer blíðum höndum um hár þitt. Umbúðirnar eru unnar að hálfu leyti úr endurunnu efni og því er þetta kjörin leið til að minnka kolefnissporið með því að nota minni orku.
Cocoa er súkkulaði tónn sem hentar aðeins í brúnt hár.
Ekki er mælt með að nota maskann til að dekkja hár, heldur viðhalda brúnum eða dýpka brúna tóna.
Athugaðu að þessi vara er ekki ætluð fyrir gráa litatóna né ljóst hár.
Kostir litarins:
Bætir litatón.
Frískar uppá núverndi hárlit
Sérsniðinn hárlitur.
Tímabundin virkni.
Kostir umhirðunnar:
Djúpnærir.
Hjálpar til við að endurheimta heilsu hársins.
Gefur glans.
*Varan er eingöngu fáanleg í netverslun
Ekki til á lager
Láttu mig vita þegar varan er aftur á lager.
Lýsing
Notkun
1.Þvoið hárið og berið maskann í rakt hárið.
2.Gott er að skipta hárinu upp til að fá jafnari útkomu, berið vel maskann í hárið.
3.Dreifið vel, gott að nota grófa greiðu.
4.Biðtími er 5-7 mínútur en það fer allt eftir hversu djúpur liturinn á að vera.
5.Skolið og mótið hárið svo eins og venjulega.
TIPS:
Áður en allt hárið er litað mælum við með því að einn lokkur sé litaður til að ná fram réttum litatóni. Byrjaðu á að velja lítinn lokk til að prófa, helst einhvern sem er vel falinn þegar hárið þitt er náttúrulega greitt.
Einangraðu lokkinn og taktu allt annað hár vel frá.
Berðu Color Depositing Mask í lokkinn og leyfðu maskanum að liggja í 2-3 mínútur.
Skolið.
Ef liturinn er of daufur, prófaðu þá annan lokk og láttu maskann liggja lengur í.
ATH
Cocoa er ríkur brúnn litur sem er hannaður fyrir ljós brúnt til brúnt hár til að viðhalda litnum.
Hann á ekki að nota til að dekkja hár sem er ljóst og ekki nota til að lita grátt hár.
Passa þarf að ef hárið er ljósbrúnt með ljósum strípum að setja ekki Cocoa í ljósu lokkana, aðeins í ljósbrúna og dökka lit til að fríska uppá tóninn.